Laganemar hjálpa til við skattframtalið
Fréttablaðið segir í dag frá hinum árlega Skattadegi HR, sem haldinn verður samhliða HR-deginum, laugardaginn 20. mars. Þá aðstoða nemendur á 3. til 5. ári lagadeildar HR almenning við að fylla út skattaframtalið. Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Margréti Rán Kjærnested, framkvæmdastjóra lögfræðiþjónustu Lögréttu.

