Þörf ábending
Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlandanna verða langt í frá ódýr og þau baka ríkissjóði mikinn vaxtakostnað, segir Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild HR. Hann segir Alex Jurshevski, sérfræðing í skuldavanda þjóða, hafa komið með þarfa ábendingu þegar hann varaði stjórnvöld við því að taka erlend lán. Rætt var við Ólaf í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

