Íslenskt þýðingarkerfi frá Máltæknisetrinu
Hrafn Loftsson, lektor við tölvunarfræðideild HR, greindi frá nýju íslensku þýðingarkerfi í morgunútvarpi Bylgjunnar eldsnemma í morgun. Kerfið þýðir úr íslensku yfir á ensku og hefur verið í þróun undanfarið ár. Hrafn mun fjalla um kerfið á fyrirlestramaraþoni HR á morgun, föstudag 19. mars. Erindi hans hefst um kl. 15.10 og er í Betelgás.
Viðtalið við Hrafn á Bylgjunni má finna hér.

