Tvö ár frá gengisfalli krónunnar

17.3.2010

Í dag eru tvö ár síðan gengisvísitala krónunnar féll meira en nokkru sinni í sögu hennar fram að því eða um 6,97%. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og vart var fjallað um annað í fjölmiðlum næstu daga. Ríkisstjórnin sagðist ekki ætla að bregðast við að svo stöddu og forsætisráðherra sagðist ekki telja að langvarandi kreppa væri í uppsiglingu. Þáverandi dósent við HÍ sem nú er viðskiptaráðherra sagði vandann hér djupstæðan og að óvissutímar væru framundan. Af þessu tilefni var rætt við Ólaf Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild HR í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica