Fyrirlestramaraþonið í fjölmiðlum

22.3.2010

Erindi fræðimanna Háskólans í Reykjavík vöktu verðskuldaða athygli á árlegu fyrirlestramaraþoni HR á föstudag. Greint var frá fjórum þeirra í fjölmiðlum.

Í dag sagði til dæmis Morgunblaðið frá erindi Bryndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur, lektors við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR. Þar fjallaði hún um líðan ungmenna á krepputímum. Í erindinu kom fram að hamingja ungmenna hefði ekki minnkað í kreppunni, þvert á móti hefði hún aukist, ekki síst hjá stúlkum.

Þá sagði Stöð 2 frá erindi Þorláks Karlssonar, deilarforseta kennslufræði- og lýðheilsudeildar HR, en hann fjallaði þar um skapandi skrif ungmenna. Rannsóknir hans sýndu að dregið hefði úr slíkum skrifum eftir aldamótin.

Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, sagði svo frá erindi Arneyjar Einarsdóttur, lektors í viðskiptadeild HR, á laugardag. Í erindi hennar kom fram að bjartsýni starfsfólks í einkageiranum hefði dregist saman frá áramótum 2007 og 2008 en stæði í stað í opinbera geiranum.

Áður var búið að greina frá því hér á HR-vefnum að  morgunútvarp Bylgjunnar hefði rætt við Hrafn Loftsson, lektor í tölvunarfræðideild HR, um íslenskt þýðingarkerfi sem hann hefði verið að þróa, m.a. í Máltæknisetrinu.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica