Kafbáturinn prófaður á HR-deginum
HR-dagurinn var vel sóttur um helgina og gerðu fjölmiðlar honum góð skil. Til dæmis var ítarlega sagt frá deginum í kvöldfréttum Sjónvarps á laugardag. Þar var meðal annars sagt frá kafbátnum og rætt við Símon Elvar Vilhjálmsson, nemanda í rafmagnstæknifræði í HR.
Þá greindi mbl.is frá góðri aðsókn og Fréttablaðið greindi frá dagskrá dagsins.

