Verðbólgan

23.3.2010

Seðlabankinn lækkaði vexti á dögunum um hálft prósentustig. Margir höfðu vonast eftir meiri lækkun. Ein af ástæðunum sem bankinn gaf upp í rökstuðningi sínum var sú að verðbólga hækkaði í febrúar eftir að hafa hjaðnað næstu tvo mánuðina þar á undan. Hvers vegna hækkar verðbólga við þau skilyrði sem nú ríkja? Var ekki búið að segja okkur að áhrifin af hruni gengisins á verðlag væru um garð gengin? Nú hrannast upp fé í bönkum en fáir taka fé að láni vegna vaxtastigsins eða óvissunnar sem ríkjandi er, nema hvort tveggja sé. Spegillinn í Ríkisútvarpinu ræddi við Katrínu Ólafsdóttur, lektor við viðskiptadeild HR í kvöld.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica