Ánægja með frumkvöðlaráðstefnu MIT, HR og Innovit
Frumkvöðlaráðstefna MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit, nýsköpunar og frumkvöðlaseturs tókst með eindæmum vel. Metfjöldi tók þátt í ráðstefnunni eða yfir fjögur hundruð manns.
Þar funduðu frumkvöðlar, fjárfestar, háskólanemar og fleiri áhugamenn um nýsköpun og ræddu hvernig hægt væri að yfirvinna kreppu með frumkvöðlastarfi, nýsköpun og endurnýjanlegri orku. MBA-nemar við HR skipulögðu ráðstefnuna í samstarfi við háskólanema í MIT.
Fjölmiðlar gerðu ráðstefnunni góð skil eins og sjá má hér:
Morgunblaðið birti viðtal við kanadíska undrabarnið Donny Ouyang.
Stöð 2 sagði frá lyftukeppni meðal frumkvöðla á ráðstefnunni.
Fréttablaðið sagði frá góðri þátttöku á ráðstefnunni.
Tidindi.is sögðu sömuleiðis frá metþátttöku á ráðstefnunni.
Stöð 2 tók viðtal við Ken Morse, einn frummælenda á ráðstefnunni, og stofnanda frumkvöðlaseturs MIT, sem og við Hrafnhildi S. Mooney, MBA-nema við HR.
MBL sjónvarp tók viðtal við Tine Thygeson, framkvæmdastjóra Venture Cup, og þátttakanda á ráðstefnunni (25.3.2010).
Morgunblaðið greindi frá mikilli þátttöku erlendis frá.
Fréttablaðið sagði frá því að undirbúningur ráðstefnunnar væri að mestu unninn í sjálfboðavinnu.
Þá birtist fréttatilkynning um ráðstefnuna í eftirfarandi miðlum: mbl.is, vb.is, visir.is og eyjan.is.
Að lokum birti Pressan myndir af hátíðarkvöldverði ráðstefnugesta í Perlunni.

