Skýrslan sé vönduð, rækileg og málefnaleg
Fjölmiðlar hafa í dag fjallað um niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis og leitað álits fjölmargra aðila. Í þeim hópi eru fræðimenn Háskólans í Reykjavík.
Vísir talaði til dæmis við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og spurði hann út í landsdóm og ráðherraábyrgð.
Þá ræddi Pressan við Ólaf Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, um ábyrgð Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns og fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Enn fremur skrifar Jón Sigurðsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins pistil á Pressuna í dag þar sem hann fjallar um niðurstöður rannsóknarnefndarinnar. Hann segir skýrslu nefndarinnar vera vandaða, rækilega og málefnalega. Í henni komi fram að áhættusækni, ábyrgðarleysi, græðgi og á köflum fyrirlitning á lögunum hafi, að því er virðist, allt of oft ráðið för.

