Enginn gengst við ábyrgð á hruninu

13.4.2010

Fréttamenn héldu áfram í dag að gera skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis skil í fjölmiðlum sínum. Fréttastjóri mbl sjónvarpsins spurði nemendur Háskólans í Reykjavík hvað þeim fyndist um niðurstöður nefndarinnar.

Þeir virtust almennt ánægðir með skýrsluna en fannst áberandi hvernig stjórnmálamenn reyndu að koma sér undan ábyrgð. Sjá hér.

Fréttamaðurinn ræddi einnig við Ólaf Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, og innti hann álits á skýrslunni.

Ólafur sagði ljóst að bankarnir hefðu fyrst og fremst hrunið vegna aðgerða á vettvangi bankanna sjálfra. Skýrslan leiddi það vel í ljós hvernig eigendurnir hefðu umgengist bankana. Talaði Ólafur um rán um hábjartan dag í því samhengi. Sjá nánar hér.

Þá var rætt við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, á Vísi þar sem hann sagði að honum blöskraði siðleysið í bönkunum. „Það er þetta siðleysi í bönkunum sem manni blöskrar. Og hvað menn gengu langt, hvað sumir misstu sig í græðgi," sagði hann meðal annars.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica