Dregið hefur úr skapandi skrifum unglinga
Þorlákur Karlsson, deildarforseti kennslufræði- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík, hefur rannsakað breytingar á skapandi skrifum unglinga frá árinu 1992 til dagsins í dag.
Víðsjá Ríkisútvarpsins ræddi við hann í dag um niðurstöður rannsóknanna. Í þeim kemur meðal annars fram að dregið hafi úr skapandi skrifum unglinga.

