Tekur afsökunarbeiðni með fyrirvara

14.4.2010

Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir í samtali við Pressuna í dag að hann taki afsökunarbeiðni Björgólfs Thors Björgólfssonar með fyrirvara.

„Maður veltir fyrir sér hvort þarna sé spuni í gangi eða hvort þarna sé heill hugur að baki,“ segir hann og vísar til þess að sporin hræði.

Björgólfur Thor birti afsökunarbeiðni sína til íslensku þjóðarinnar í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica