Hvernig getur svo lítið land haft svona víðtæk áhrif?
Bandaríski fjölmiðillinn National Public Radio (NPR) fjallar í dag, 16. apríl, um eldgosið í Eyjafjallajökli og efnahagsástandið hér á landi og byggir umfjöllun sína á viðtali við Friðrik Má Baldursson, deildarforseta viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík.
Í upphafi veltir blaðamaðurinn því fyrir sér hvernig Ísland; eyja í Norður-Atlantshafi og svo fámenn þjóð, geti valdið svo miklum skaða. Vísar hann þar til áhrifa bankakreppunnar og eldgossins á umheiminn.
Umfjöllunina má finna hér.

