Þeir sem stóðu vaktina eigi allir að víkja

18.4.2010

Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík, sagði í samtali við Stöð 2 í kvöld að allir þeir sem átt hefðu sæti í ríkisstjórn í aðdraganda efnahagshrunsins og sætu nú áfram í ríkisstjórn eða á þingi ættu að axla ábyrgð.

Til að vinna traust almennings að nýju væri eðlilegast fyrir þau að stíga til hliðar.

Þeir sem áttu sæti í ríkisstjórn á umræddum tíma og eru enn ýmist þingmenn eða ráðherrar eru: Einar K. Guðfinnsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristján L. Möller, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Össur Skarphéðinsson.

Þorgerður K. Gunnarsdóttir sat einnig í umræddri ríkisstjórn en hún lýsti því sem kunnugt er yfir um helgina að hún hygðist fara í tímabundið leyfi sem þingmaður. Áður hafði Björgvin G. Sigurðsson lýst því sama yfir sem og Illugi Gunnarsson.

Viðtalið við Stefán má finna hér.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica