Ofbeldismenn koma úr öllum hópum samfélagsins
Fremjendur ofbeldis gegn konum koma úr öllum hópum samfélagsins. Þetta kemur fram í meistararitgerð Elvu Daggar Ásu- og Kristinsdóttur, laganema við Háskólann í Reykjavík.
Ritgerðin byggir meðal annars á rannsókn Elvu Daggar á gögnum Kvennaathvarfsins sem ná yfir sjö ára tímabil.
Stöð 2 greindi frá rannsóknum Elvu Daggar í kvöld. Hún sagði að niðurstöðurnar sýndu að ekki væri hægt að fullyrða að ofbeldismenn væru einsleitur og ómenntaður hópur. Þvert á móti mætti í honum finna þverskurð samfélagsins.
Sjá nánar hér.

