Flýtir fyrir afnámi gjaldeyrishafta
Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir í samtali við kvöldfréttir Ríkisútvarpsins að kaup Seðlabanka Íslands á eignum sem Seðlabankinn í Lúxemborg eignaðist við hrun íslensku bankanna, muni koma til með að flýta fyrir afnámi gjaldeyrishafta og stuðla að styrkingu krónunnar. Tíðindin séu stór áfangi í að koma Íslandi út úr kreppunni.

