Ný leikjalína í tölvunarfræði
Í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík verður í fyrsta sinn næsta haust boðin sérstök áherslulína í tölvuleikjaþróun. Leikjalínan hefur verið þróuð í samstarfi við Samtök íslenskra leikjafyrirtækja.
Greint var frá leikjalínunni í Fréttablaðinu. Þar var viðtal við Björn Þór Jónsson, deildarforseta tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík.

