Skilvirkni og gæði ráði för

27.5.2010

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, skrifaði eftirfarandi grein sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag.

Þessa dagana er mikið rætt um það hvenær kreppunni ljúki og aftur verði hagvöxtur á Íslandi.  Það að komast formlega út úr kreppunni er þó aðeins fyrsta skrefið. Til að standa við skuldbindingar okkar og ná þeim lífskjörum sem við viljum búa við þarf sterkan og stöðugan hagvöxt til lengri tíma, nokkuð sem aðeins fæst með verðmætasköpun og sterkri stöðu á samkeppnismarkaði.

Varla þarf að orðlengja það að háskólar eru nauðsynleg forsenda samkeppnishæfni þjóða. Háskólar bera ábyrgð á sérfræðiþekkingu og færni og eru mikilvæg uppspretta nýsköpunar og tækniframfara. Það ætti því að vera öllum ljóst að öflugt starf háskólanna er lykillinn að því að hægt verði að byggja upp framtíðarhagvöxt á Íslandi.

Vanda þarf til verka í niðurskurði

Engum dylst að fjárhagsstaða Íslands er þröng og nauðsynlegt er að draga saman í útgjöldum ríkisins. Það er þó fráleitt að líta á  háskólasamfélagið sem bruðl sem eigi að vera auðvelt að skera niður. Staðreyndin er sú að Ísland eyðir hlutfallslega mun minna í háskóla sína en okkar nágranna- og samanburðarlönd.

Samkvæmt tölum OECD frá 2006 eyðir Ísland 8.579 dollurum á hvern nemanda á háskólastigi á ári þegar til dæmis Svíþjóð eyðir 16.991 dollara á hvern nemanda á háskólastigi á ári. Staðan er því í raun sú að íslenskt samfélag hefur fengið ótrúlega mikið út úr háskólum landsins fyrir lítinn pening.

Ekki hefur þó reynst auðvelt að vernda þessa dýrmætu fjárfestingu í framtíð okkar.  Framlög ríkisins til háskólanna hafa þegar verið lækkuð og frekari niðurskurður er framundan. Við þessar aðstæður er  mikilvægt að vanda mjög til verka og setja skýr markmið. Þau verða að ganga út á að hámarka afrakstur háskólanna í menntun og rannsóknum, svo hámarka megi fjölda vel menntaðra einstaklinga fyrir atvinnulífið.

Til að svo megi verða er m.a. nauðsynlegt að sporna við brottfalli og hafa skýra hvata til þess að nemendur nái árangri í námi sínu.  Með því má spara verulegar fjárhæðir, án þess að hafa neikvæð áhrif á þá sem ljúka námi sínu á eðlilegum hraða.

Skilvirkni og gæði ráði för

Háskólarnir eru lykilstoðir í uppbyggingu og endurreisn. Öll umræða um háskóla og niðurskurð þarf því að vera fagleg og vönduð.  Það er auðvelt að reikna út sparnaðarleiðir ef ekki er tekið tillit til afleiðinganna. Þetta snýst ekki um að vernda stofnanir eða hefðir.  Þetta snýst um að tryggja samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Þegar fjármagn er af skornum skammti eiga skilvirkni og gæði að ráða för.

 

 

 

 


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica