Skortur á menntuðu fólki í tæknigeiranum
Skortur á menntuðu starfsfólki í tæknigeiranum var umfjöllunarefni Markaðar Fréttablaðsins í dag en m.a. var rætt við Gunnar Guðna Tómasson, deildarforseta tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
Fram kom í greininni að menntað fólk sárvantaði til starfa á þeim sviðum þar sem fyrirséð væri að vöxtur yrði hvað mestur næstu ár. Gunnar Guðni sagði að sérstaklega vantaði fólk menntað í véla- og tölvuverkfræði.

