Eftirspurn eftir tölvunarfræðingum í leikjaiðnaðinum
Ný tölvuleikjalína hefst í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík í haust. Greint var frá henni í sjö-fréttum Ríkissjónvarpsins og var af því tilefni tekið viðtal við Björn Þór Jónsson, starfandi forseta tölvunarfræðideildar HR.
Leikjalínan var kynnt á tölvuleikjadegi HR og Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI, Icelandic Gaming Industry) sem haldinn var í húsakynnum HR á laugardag.
Sex-fréttir Ríkisútvarpsins greindu frá leikjadeginum og nýju tölvuleikjalínunni en mikil eftirspurn er eftir tölvunarfræðingum í íslenska tölvuleikjaiðnaðinum.

