Sakamálarannsókn ekki útilokuð

9.6.2010

Í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi var fjallað um þá afstöðu setts ríkissaksóknara að rannsóknarskýrsla Alþingis gæfi að svo stöddu ekki ástæðu til sakamálarannsóknar á málum fyrrum seðlabankastjóra og forstjóra Fjármálaeftirlits.

Rætt var við Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, sérfræðing í refsirétti og afbrotafræði við lagadeild HR, og benti hún á að þessi niðurstaða útilokaði ekki að til sakamálarannsóknar komi síðar ef önnur rannsóknargögn gefi ástæðu til.

Sjá má viðtalið við Svölu á fréttavef RÚV.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica