Almenningur telur íslensk lög óskiljanleg
Vísir.is segir í dag frá niðurstöðum mastersritgerðar Söru Bjarkar Hauksdóttur í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Sara Björk kannaði viðhorf til skiljanleika íslenskra laga meðal lögmanna annars vegar og úrtaks einstaklinga úr þjóðskrá hins vegar. Meðal niðurstaðna hennar var að þótt meirihluti lögmanna teldi að íslensk lög væru skiljanleg almenningi, er einungis fjórðungur almennings á sömu skoðun.
Leiðbeinandi Söru Bjarkar var Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild HR og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu.

