Skortur á fólki með tæknimenntun hamlar tæknivexti
Rætt var við Ara Kristin Jónsson, rektor HR, á visir.is í dag um þann skort sem ríkir á tæknimenntuðu fólki á Íslandi. Tilefnið er að heilsíðuauglýsingar birtust í blöðum í gær þar sem forstjórar 27 stórra íslenskra fyrirtækja hvöttu ungmenni til að sækja í tækninám vegna fyrirsjáanlegs skorts á fólki í þeim greinum á komandi árum.

