Bestu nemendur HR heiðraðir
Bestu nemendur Háskólans í Reykjavík voru í dag heiðraðir við hátíðlega athöfn í skólanum. Að þessu sinni hlutu 70 nemendur viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur á síðustu önn. Þessir nemendur komast þar með á svokallaðan Forsetalista Háskólans í Reykjavík, en þeim heiðri fylgir niðurfelling skólagjalda við HR á yfirstandandi önn.
Straumur greiðir skólagjöld allra þessara afburðanemenda, en bankinn hefur um langt árabil styrkt bestu nemendur Háskólans í Reykjavík.
Að þessu sinni voru 23 nemendur úr tækni- og verkfræðideild heiðraðir, 20 nemandi úr viðskiptadeild, 13 úr lagadeild, 11 úr tölvunarfræðideild og 3 nemendur kennslufræði- og lýðheilsudeildar. 31 kona er á Forsetalistanum og 39 karlmenn.
Hér að neðan má sjá myndir frá athöfninni:
Nemendur úr kennslufræði- og lýðheilsudeild:
Nemendur úr viðskiptadeild:
Nemendur úr tölvunarfræðideild:
Nemendur úr tækni- og verkfræðideild:
Nemendur úr lagadeild

