Forsíðufréttir

Mikilvægt að þora - Háskólinn í Reykjavík heiðrar bestu nemendur skólans

25.9.2008


Háskólinn í Reykjavík heiðraði í dag sína bestu nemendur við hátíðlega athöfn í skólanum.

Heiðurinn felst í því að afburðanemendur HR komast á svokallaðan Forsetalista HR, en þeim heiðri fylgir að viðkomandi nemendur fá felld niður skólagjöld á yfirstandandi önn. Að þessu sinni voru 70 nemendur skólans heiðraðir með þessum hætti.


Straumur hefur um langt árabil styrkt fremstu nemendur Háskólans í Reykjavík, en bankinn greiðir að fullu skólagjöld allra þessara nemenda. „Stuðningur okkar við forsetalista Háskólans í Reykjavík er viðleitni til þess að styðja við afburðanemendur sem munu án vafa láta gott af sér leiða í störfum sínum í náinni framtíð,” segir William Fall forstjóri Straums.


Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík sagði við sama tækifæri að skólinn væri afskaplega stoltur af þessum nemendum. Hún vitnaði í nýja rannsókn sem sýndi að húmor og hugrekki væru þeir eiginleikar sem fólk myndi helst eftir í fari samstarfsmanna sinna. „Það er afskaplega mikilvægt fyrir ykkur að halda áfram að þora, hættið því aldrei þó svo ykkur kunni að mistakast af og til“, sagði Svafa.


Eins og áður segir eru 70 nemendur á Forsetalista HR haustið 2008. 29 þeirra stunda nám í tækni- og verkfræðideild, 23 eru í viðskiptadeild, 8 í tölvunarfræðideild, 7 í lagadeild og 3 eru í kennslufræði- og lýðheilsudeild.

 

Á þessari síðu er hægt að kynna sér hverjir eru á Forsetalistanum í hverri deild.


Hér að neðan eru myndir frá athöfninni.

 

Svafa Grönfeldt, rektor HR, ávarpaði nemendur og óskaði þeim til hamingju

með frábæran árangur.

 

Georg Andersen, forstöðumaður samskipta- og markaðssviðs Straums,

ávarpaði nemendur.

Nemendur viðskiptadeildar ásamt Þorláki Karlssyni, forseta deildarinnar og

Georg Andersen, fulltrúa Straums.

Nemendur tölvunarfræðideildar ásamt Ara Kristni Jónssyni, forseta deildarinnar

og Georg Andersen, fulltrúa Straums.

Nemendur lagadeildar ásamt Þórði S. Gunnarssyni, forseta deildarinnar og

Georg Andersen, fulltrúa Straums.

Nemendur kennslufræði- og lýðheilsudeildar ásamt Ingu Dóru Sigfúsdóttur,

forseta deildarinnar og Georg Andersen, fulltrúa Straums.

Nemendur tækni- og verkfræðideildar ásamt Gunnari Guðna Tómassyni,

forseta deildarinnar og Georg Andersen, fulltrúa Straums.

Hörður Ingi Björnsson, nemandi í tölvunarfræði flutti

ávarp fyrir hönd nemenda.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica