Forsíðufréttir

Bjartsýni og hugrekki - Háskólinn í Reykjavík heiðrar bestu nemendur skólans

30.1.2009


Háskólinn í Reykjavík heiðraði í gær, fimmtudaginn 29. janúar, sína bestu nemendur við hátíðlega athöfn í skólanum.


Heiðurinn felst í því að afburðanemendur HR komast á svokallaðan Forsetalista HR, en þeim heiðri fylgir að viðkomandi nemendur fá felld niður skólagjöld á yfirstandandi önn. Að þessu sinni voru 69 nemendur skólans heiðraðir með þessum hætti.


Líkt og undanfarin ár styrkir Straumur fjárfestingabanki fremstu nemendur við Háskólann í Reykjavík og greiðir bankinn skólagjöld þeirra á þessari önn. „Við teljum það mikilvægt á tímum sem þessum að styðja við bakið á afburðanemendum en þeir munu án vafa láta gott af sér leiða í þeirri uppbyggingu sem er framundan á Íslandi” segir William Fall, forstjóri Straums.


Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, sagði við sama tækifæri að skólinn væri afskaplega stoltur af þessum nemendum. Hún sagði þá vera öðru ungu fólki góð fyrirmynd á tímum þar sem þyrftum á hugrökku fólki að halda. „Fólk sem nær afbragðs árangri í námi er líklegra en margir aðrir til að horfa lengra og í allar áttir, það er líklegra til að vera reiðubúið til að leggja meira á sig en aðrir og það er því líklegra til að þess að vera hugrakkara og bjartsýnna en aðrir. Það er svona fólk sem íslenskt samfélag þarf á að halda núna sem aldrei fyrr, því bjartsýnin er ekki bara eitthvað sem við notum í góðæri, hún er aldrei eins mikilvæg eins og á tímum sem þessum. Þess vegna erum við stolt af þessum nemum og við bindum miklar vonir við þá í framtíðinni“,  sagði Svafa.


Eins og áður segir eru 69 nemendur á Forsetalista HR haustið 2008. 20 þeirra stunda nám í tækni- og verkfræðideild, 20 eru í viðskiptadeild, 13 í tölvunarfræðideild, 10 í lagadeild, 3 eru í kennslufræði- og lýðheilsudeild og 3 stunda nám á frumgreinasviði skólans.


Á þessari síðu er hægt að kynna sér hverjir eru á Forsetalistanum í hverri deild.


Meðfylgjandi eru myndir frá athöfninni.


Á hverri hópamynd eru nemendur viðkomandi deildar (sjá heiti mynda) ásamt forseta deildarinnar, Svöfu Grönfeldt, rektor HR og William Fall, forstjóra Straums.

 

Nemendur tölvunarfræðideildar

 

 

Nemendur lagadeildar

 

Nemendur tækni- og verkfræðideildar

 

Nemendur frumgreinasviðs

 

Nemendur viðskiptadeildar

 

Nemendur kennslufræði- og lýðheilsudeildar

 

 

 

 

Rósa Björgvinsdóttir talaði fyrir hönd stúdenta við athöfnina.

 

 

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica