Skólasetning HR
Háskólinn í Reykjavík var settur í dag, þriðjudaginn 18. ágúst. Þetta er 12. starfsár skólans og að afloknum sameiginlegum morgunverði bauð dr. Svafa Grönfeldt, rektor HR, nýnema velkomna til náms og starfa við skólann, en alls hefja tæplega 700 nemendur grunnnám við skólann á þessu hausti.
Nemendum var að því loknu skipt í smærri hópa og öll starfsemi HR kynnt fyrir þeim á skipulegan hátt. Má þar m.a. nefna deildir skólans, alþjóðasvið, atvinnuþjónustu, siðareglur skólans, þjónustudeild skólans og stúdentafélög einstakra deilda og félagslíf skólans.
Nýnemadagarnir halda áfram á morgun en þá verður nýnemum HR meðal annars kynnt stúdentaþjónusta HR (námsráðgjöf), rannsóknarstarf HR, bókasafn og tölvu- og tækniþjónusta skólans.



