Frumkvöðlaverðlaun Guðfinnu S. Bjarnadóttur afhent
Framkoma og framsögn þjálfuð með gervigreind
Frumkvöðlaverðlaun Guðfinnu S. Bjarnadóttur voru veitt í þriðja sinn við hátíðlega athöfn við skólasetningu Háskólans í Reykjavík, þriðjudaginn 18. ágúst. Verkefnið sem hlaut verðlaunin fyrir bestu viðskiptaáætlunina nefnist B. Unique ehf., en hugmyndin gengur út á að þjálfa framsögutækni með hugbúnaðinum BIONIC sem nýtir sjálfvirka greiningu á málnotkun og framkomu með háþróaðri gervigreind. Hugbúnaðurinn hefur þá kosti umfram námskeið í framsögutækni að veita síþjálfun, hann er ódýrari en sambærilegar lausnir á markaði og hægt er að nota hann hvar sem er. Hvatinn að verkefninu er að leysa þann vanda sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir þegar þeir tjá sig fyrir framan hóp af fólki. Markhópar eru skólar, fyrirtæki og stofnanir. BIONIC er hugbúnaður sem gæti umbylt hæfni einstaklinga í framsögu og er áætlaður þróunartími hugbúnaðarins eitt ár. Stefnt er að því að hugmyndinni verði hrint í framkvæmd í samvinnu við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík CADIA.
Hópurinn sem hlaut verðlaunin í ár er skipaður nemendum við HR sem leggja stund á grunnnám í viðskiptafræði, lögfræði, heilbrigðisverkfræði, fjármálaverkfræði og hátækniverkfræði við HR. Nemendurnir sóttu námskeiðið Nýsköpun og stofnun fyrirtækja á vorönn 2009 og skiluðu drögum að viðskiptaáætlun sem lokaverkefni í því námskeiði. Þessir nemendur heita: Arnþór Sigurðsson, Atli Ómarsson, Einar Örn Guðmundsson, Gunnar Valur Sigurðsson, Guðmundur Magnússon og Tinna Björk Bryde.
Í umsögn dómnefndar segir að viðskiptahugmyndin B. Unique sé einföld og athyglisverð lausn á augljósu vandamáli sem fylgi því að undirbúa einstaklinga fyrir kynningar og ræðuhöld. Þar segir ennfremur: „Sú tæknilega nálgun sem felst í lausninni er frumleg og bæði fýsileg og möguleg. Í samstarfi við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík, CADIA, er búið að sannreyna að hægt er að leysa tæknilega útfærslu hugmyndarinnar. Jafnframt er búið að meta hve langan tíma tekur að þróa lausnina.“
Að stofnun styrktarsjóðs dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík, standa Bakkavör Group, Háskólinn í Reykjavík og Viðskiptaráð Íslands og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. Sjóðurinn ber nafn Guðfinnu vegna framlags hennar til frumkvöðlamenntunar innan HR.


