Forsíðufréttir

Auðginnt er barn í bernsku sinni

28.8.2009

Út er komin bókin Auðginnt er barn í bernsku sinni - afnám fyrningar alvarlegra kynferðisbrota gegn börnum eftir Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, sérfræðing við lagadeild HR.

Í ritinu er gerð grein fyrir refsipólitískum sjónarmiðum sem lágu að baki breytingum á fyrningarreglum almennra hegningarlaga vorið 2007. Samkvæmt þeim skulu tiltekin alvarleg kynferðisbrot gegn börnum ekki fyrnast. Aðdragandi breytinganna og rökin fyrir þeim bera vitni um ný viðhorf til slíkra brota þar sem aukið tillit er tekið til brotaþola og sérkenna brotanna. Í bókinni er að finna marvíslegan fróðleik um þennan brotaflokk, sérkenni hans og afleiðingar brotanna fyrir þolendur.
Bok-Svolu-005


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica