Forsíðufréttir

Nemendur HR hanna og smíða Segway tæki (NoWay)

28.8.2009

Tveir nemendur í véltæknifræði við tækni- og verkfræðideild HR, Stefán Þór Bjarnason og Valdimar Ómarsson, hafa hannað og smíðað frá grunni rafknúið tvíhjóla farartæki, svipað hinu heimsþekkta Segway-hjóli. Tæki þeirra félaga heitir NoWay og er góðlátleg vísun þeirra félaga til þess hversu erfitt og krefjandi þetta verkefni reyndist. Margir hafa reynt að smíða slíkt tæki en fæstum tekist. Sem fyrr segir hönnuðu og smíðuðu félagarnir farartækið frá grunni og þeir þróuðu sjálfir allan stýrihugbúnað og stýrirásir.

Mánudaginn 31. ágúst kl. 13:00 er svo komið að því að þeir félagar verji þetta BSc-lokaverkefni sitt. Öllum er velkomið að mæta á kynningu verkefnisins og einnig að taka prufuakstur á farartækinu. Farartækið verður í eigu HR og mun vonandi nýtast vel þegar skólinn flytur í nýtt húsnæði í Nauthólsvík, bæði sem farartæki og sem kennslutæki í stýringum og reglun. Prófdómari við vörnina er dr. Kristinn Andersen yfirmaður þróunar- og hönnunarsviðs í Marel.

Kynningin fer fram í stofu 325 á Höfðabakka 9.

NoWay-4


NoWay-2


NoWay-3


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica