Er upplýsingaleki einhvern tíma réttlætanlegur?
Thomas Devine, sérstakur ráðgjafi Bandaríkjastjórnar um upplýsingaleka (whistleblowing), gaf fjölmörg dæmi um hvernig fyrirtæki og stjórnvöld geta nýtt upplýsingaleka til að efla starfsemi sína eða skaðast við að halda sannleikanum niðri, í erindi sem hann hélt í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu í dag. Mjög líflegar umræður spunnust í kjölfar erindisins.
Thomas Devine hefur meðal annars komið að gerð lagafrumvarpa í Bandaríkjunum sem tryggja réttarstöðu þeirra sem komið hafa upp um spillingu og hlotið viðurkenningu frá yfirvöldum vegna starfa sinna í þeirra þágu. Þessa stundina vinnur hann að löggjöf um eftirlit með bönkum til að koma í veg fyrir ótrygga lánastarfsemi þeirra.
Hann er yfirmaður lögfræðideildar GAP-stofnunarinnar í Washington (Government Accountability Project) en hún hefur í yfir 30 ár stuðlað að aukinni samfélagsábyrgð stjórnvalda og fyrirtækja. Þar er sérstaklega barist fyrir auknu tjáningarfrelsi starfsmanna og vernd þeirra sem greina frá spillingu þar sem hennar verður vart.
Aðstandendur fundarins voru Eþikos, miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja, og bandaríska sendiráðið á Íslandi, í samstarfi við The English Speaking Union.
Devine var gestur Kastljóss í gærkvöld og Morgunblaðið birti viðtal við hann í dag.

