Alþjóðlegt málþing um fjármálakerfi heimsins í HR
Alþjóðlegt málþing undir yfirskriftinni „Managing financial instability in capitalistic economies“ var sett í morgun í Háskólanum í Reykjavík. Á þinginu, sem stendur til 5. september, verður fjallað um stöðugleika fjármálakerfisins í kapitalístisku umhverfi. Tilefni þessa málþings er að sjálfsögðu sú efnahagskreppa sem þorri þjóða heims glímir við þessi misserin.
Von er á hagfræðingum og fræðimönnum hvaðanæva að úr heiminum til þessa þings.en á meðal lykilfyrirlesara á þessu þingi má nefna:
Mauro Gallegati, Polytechnic University of Marche, Ancona, Ítalíu - "Why financial markets are unstable?"
Willi Semmler, New School, New York, USA - "Facts and modeling of the recent financial market meltdown"
Guðni Thorlacius Jóhannesson, Háskólanum í Reykjavík - "Historians are from Venus and economists from Mars. Different approaches to the Icelandic bank collapse"
Cees Diks, Háskólanum í Amsterdam, Hollandi - "Bounded rationality, herding, and endogenous evolution towards market instability"
Thomas Lux, Háskólanum í Kiel, Þýskalandi - "Mass psychology in action: Identification of social interaction effects in financial and economic sentiment data"
Luciano Pietronero, Università la Sapienza, Róm,Ítalíu - "Complex behavior and self-organization in agent-based models"
Enrico Scalas, University of East Piedmont, Alessandria, Ítalíu - "Combinatorial stochastic processes and the reconstruction of macroeconomics"
Leanne Ussher, City University of New York, USA - "Agent-based models with zero intelligence"
Á þinginu verður kynnt til sögunnar „The Reykjavík Manifesto“, sem er skjal sem hefur að markmiði að kynna nýjar rannsóknir og nálganir í hagfræði eftir hrunið á fjármálamörkuðum heimsins. Þetta skjal er hýst á þessum tengli og verður kynnt á þinginu.


