Forsíðufréttir

Vel sótt samtal um dauðann

3.9.2009

Fullt var út úr dyrum þegar Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur, hélt erindi sitt „Samtal um dauðann“ í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu í dag.

Bragi lagði höfuðáherslu á nýjustu rannsóknir sínar, þar sem skoðað var hvort kynjamismunur sæist í sambandi við tal um eigin yfirvofandi dauða og hvort jákvæð örvun auki líkur á að deyjandi einstaklingar tjái sig um þetta viðkvæma efni, en Bragi hefur sl. ár unnið að rannsóknarverkefni um ekkla á Íslandi undir handleiðslu Ásgeirs R. Helgasonar.

Bragi ræddi ennfremur um sorgarviðbrögð, heilsutengda þætti og dánartíðni í samanburði við samanburðarhóp og hann velti upp spurningum á borð við það hvort deyjandi einstaklingar væru hræddir við dauðann og hvort þeir væru uppteknir af hugsunum um velferð sinna nánustu.

Bragi Skúlason hefur þjónað sem sjúkrahúsprestur á Landspítalanum frá 1989.

Fréttablaðið birti viðtal við Braga um rannsóknir hans og erindið í gær og hann var í viðtali á Bylgjan í bítið í morgun.

Bragi-Skulason


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica