Forsíðufréttir

Nýr leik- og grunnskóli rís á lóð HR við Öskjuhlíð

3.9.2009

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, og Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar undirrituðu í gær, miðvikudaginn 2. september, þríhliða samkomulag Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Hjallastefnunnar ehf. um að Hjallastefnan ehf. byggi og reki tímabundið leik- og grunnskóla á svæði Háskólans í Reykjavík við rætur Öskjuhlíðar.

Á haustdögum 2008, lýstu Reykjavíkurborg og Hjallastefnan ehf. yfir vilja sínum til að í Reykjavík verði starfræktur sjálfstætt rekinn skóli undir merkjum Hjallastefnunnar fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla. Hjallastefnan ehf. leitaði eftir því við Háskólann í Reykjavík að fá aðstöðu fyrir skólann á lóð háskólans. Alltaf var gert ráð fyrir að leikskóli yrði á svæðinu og HR tók þessu því opnum örmum.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík verður rekinn á grundvelli laga um grunnskóla og er gert ráð fyrir að í skólanum verði fjórar bekkjardeildir, fimm, sex, sjö og átta ára barna. Þarna verða fyrst í stað um 70 nemendur en þeim gæti fjölgað á næstu árum enda möguleiki að stækka skólann. Hugmyndafræði og kennsluhættir Hjallastefnunnar verða höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans auk þess sem náin samvinna verður við leikskólastig Hjallastefnunnar.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri fagnaði þessum áfanga og sagði mikilvægt að foreldrar og börn í Reykjavík nytu vals í skólastarfi. „Hjallaskólinn er afar mikilvæg viðbót við þá góðu skóla sem við höfum í Reykjavík og það er ánægjulegt að geta boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir fyrir börnin í borginni.“ Svafa Grönfeldt, rektor HR, lýsti einnig sérstakri ánægju með að fá þennan skóla á svæðið og sagði gott fyrir nemendur að aðlagast þessu umhverfi áður en þeir koma í HR, rétt sunnan við þennan leik- og grunnskóla.

Samningur Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Hjallastefnunnar ehf. er til fimm ára og verður endurskoðaður að þeim tíma liðnum. Hjallastefnuskólinn hindrar ekki aðrar hugsanlegar framkvæmdir á vegum HR á svæðinu á næstu 5 árum. 

Fyrsta-skoflustunga

Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, tekur fyrstu skóflustunguna.

Hjallastefnan-21-agust

Svona leit skólabyggingin út í lok ágúst.

Skolahusid---tolvumynd

 Tölvumynd af skólanum fullbyggðum.

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica