Forsíðufréttir

Samstarfssamningur við Orkustofnun

7.9.2009

Auðlindaréttarstofnun HR og Orkustofnun hafa gert með sér samstarfssamning sem felur það í sér að Orkustofnun býður starfsnám fyrir nemendur í meistaranámi við lagadeild HR.

Þar með eru þær stofnanir og fyrirtæki sem hafa gert samning við lagadeild HR um viðurkennt starfsnám orðin 26 talsins, en hluti af meistaranámi við deildina getur farið fram í viðurkenndu starfsnámi og nemandi fengið allt að sex einingar metnar á grundvelli samninga af þessu tagi. Það skilyrði er sett að nemandi vinni undir leiðsögn að viðfangsefnum sem eru til þess fallin að auka þekkingu og hæfni til að vinna að úrlausn lögfræðilegra verkefna.

Audlindastofnun-og-Orkustofnun

Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR og Lárus Ólafsson, lögfræðingur hjá Orkustofnun handsala samninginn.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica