Viðskiptadeild gerir samstarfssamning við 15 fyrirtæki
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík hefur eflt samstarf sitt við íslenskt atvinnulífi og býður nú nemendum sínum í fyrsta sinn upp á starfsnám í samvinnu við 15 fyrirtæki. Markmið samstarfsins er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið, gefa þeim kost á að nýta fræðin í hagnýtu samhengi sem og stuðla að aukinni reynslu í vinnumarkaðsmálum. Jafnframt stendur viðskiptafræðinemum til boða starfsnám erlendis.
Nýlega var skrifað undir þennan samstarfssamning við fulltrúa allra 15 fyrirtækjanna og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
Fyrirtækin sem gerðu samstarfssamning við viðskiptadeild HR eru:
- Deloitte
- Ölgerð Egils Skallagrímssonar
- Ernst & Young
- Icepharma
- Johan Rönning
- KPMG
- Parlogis
- PWC
- Síminn
- SP
- Stafir
- Viðskiptaráð
- Vífilfell
- VÍS
- Vodafone


