Fyrirlestur um pyndingar
Dr. Boštjan M. Zupančič, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, hélt erindi við Háskólann í Reykjavík sl. föstudag, þar sem hann fjallaði um framlagningu og notkun sönnunargagna í sakamálum sem aflað hefur verið með valdbeitingu, þ.e. pyndingum eða annarri ómannlegri meðferð eða hótunum þar um.
Í fyrirlestrinum leitaðist dr. Zupančič við að sýna fram á að notkun slíkra sönnunargagn væri ósamrýmanleg hugmyndinni um réttláta málsmeðferð (Nemo contra se prodere tenetur).
Þá fjallaði hann einnig um svokallaða útilokunarreglu (exclusionary rule) sem útilokar framlagningu sönnunargagna sem aflað er með framangreindum hætti.

