Forsetalisti HR og nýnemastyrkir HR
Nemendur á Forsetalista Háskólans í Reykjavík voru heiðraðir við hátíðlega athöfn í dag. Á sama tíma var nýnemastyrkur Háskólans í Reykjavík afhentur.
Forsetalisti HR
Á forsetalista HR komast þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili og fá þeir skólagjöld næstu annar niðurfelld.
Að þessu sinni komst 71 nemandi á Forsetalista HR og var skiptingin með eftirfarandi hætti á milli deilda:
- LD 4
- KLD 3
- TD 10
- VD 10
- VD – HMV vor og sumar 14
- TVD 27
- FrumgreinaMennt 3
Grunnnám - nýnemastyrkur
Alls hlutu 35 nemendur úr öllum deildum nýnemastyrk grunnnáms; 15 karlar og 20 konur.
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er eingöngu veittur nemendum sem hefja námið á haustönn.
Allir sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn, og til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR. Aðeins þeir sem eru að fara í 3ja ára BSc/BA-nám geta sótt um styrkinn.
Meistaranám - nýnemastyrkur
Alls hlutu 10 nemendur úr öllum deildum nýnemastyrk meistaranáms; 4 karlar og 6 konur.
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er eingöngu veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn.
Nemendur sem hlutu nýnemastyrk grunnnáms ásamt rektor HR.
Nemendur sem hlutur nýnemastyrk meistaranáms ásamt rektor HR.
Nemendur kennslufræði- og lýðheilsudeildar HR sem eru á forsetalista ásamt forseta deildarinnar og rektor HR.
Nemendur lagadeildar HR sem eru á forsetalista ásamt forseta deildarinnar og rektor HR.
Nemendur tækni- og verkfræðideildar HR sem eru á forsetalista ásamt forseta deildarinnar og rektor HR.
Nemendur viðskiptadeildar HR sem eru á forsetalista ásamt forseta deildarinnar og rektor HR.
Nemendur tölvunarfræðideildar HR sem eru á forsetalista ásamt forseta deildarinnar og rektor HR.
Nemendur frumgreinamenntar HR sem eru á forsetalista ásamt forstöðumanni námsins og rektor HR.

