Forsíðufréttir
Fjölmenni á fundi Auðlindaréttarstofnunar HR
Mikið fjölmenni var á fundi Auðlindarréttarstofnunnar Háskólans í Reykjavík í dag; Orka úr iðrum jarðar! Hverjir mega nýta hana? Á fundinum voru eftirfarandi erindi flutt:
- Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar og sérfræðingur við lagadeild HR: Réttarstaðan.
- Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar HR: Auðlindir í opinberri eigu: Leigutími og leigugjald.
- Þorsteinn Pálsson lögfræðingur: Hvaða leikreglur eiga að gilda?
- Arnar Guðmundsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra: Leikreglur á orkumarkaði.
Líflegar umræður fóru fram á meðal áheyrenda og fyrirlesara að loknum erindum. Fundarstjóri var Þórður Bogason hrl.

