Forsíðufréttir

Lagadeild HR og FÍS hefja samstarf

17.9.2009

Lagadeild HR og Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) undirrituðu nýlega samstarfssamning sem felur í sér að FÍS býður starfsnám fyrir nemendur í meistaranámi við lagadeild HR.

Þar með eru þær stofnanir og fyrirtæki sem hafa gert samning við lagadeild HR um viðurkennt starfsnám orðin 27 talsins, en hluti af meistaranámi við deildina getur farið fram í viðurkenndu starfsnámi og nemandi fengið allt að sex einingar metnar á grundvelli samninga af þessu tagi. Það skilyrði er sett að nemandi vinni undir leiðsögn að viðfangsefnum sem eru til þess fallin að auka þekkingu og hæfni til að vinna að úrlausn lögfræðilegra verkefna.

Á myndinni hér að neðan má sjá þegar Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hdl. og lögmaður FÍS (t.v.) og Þórður S. Gunnarsson, forseti lagadeildar HR, rituðu undir samninginn.

FÍS og lagadeild

006


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica