Dagur fjármálalæsis
Dagur fjármálalæsis var haldinn föstudaginn 18. september. Af því tilefni efndi Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík til ráðstefnu um fjármálalæsi og var hún ætluð öllum þeim sem uppfræða um fjármál; svo sem foreldrum, kennurum, starfsmönnum fjármálafyrirtækja og þeim sem hafa áhuga á fjármálalæsi almennt.
Á ráðstefnunni fjallaði Breki Karlsson, forstöðumaður stofnunarinnar um fjármálalæsi og framtíðina og Páll Óskar Hjálmtýsson sagði frá reynslu sinni af peningum og peningaleysi. Hugrún Ester Sigurðardóttir kynnti BSc-verkefni sitt, Breytingar á fjármálalæsi meðal 18 ára íslenskra framhaldsskólanema milli áranna 2005 og 2009 og Þóra Kristín Arnarsdóttir og Sigurlaug Sverrisdóttir kynntu BSc-verkefni sitt: Fjármálaráðgjöf: Er fjármálaráðgjöf fjármálafyrirtækja einstaklingsmiðuð? Að lokum fjallaði Lára Ómarsdóttir, fréttamaður, um hagsýni og hamingju.
Í tilefni af Degi fjármálalæsis efndu Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík og Morgunblaðið til ritgerðasamkeppni meðal framhaldsskólanema. Efni ritgerðanna átti að tengjast yfirskrift dagsins sem var Fjármál eru ekki feimnismál.
Björn Már Ólafsson, nemandi á náttúrufræðibraut Menntaskólans í Reykjavík hlaut fyrstu verðlaun fyrir ritgerð sína Fjármál eru ekki feimnismál. Verðlaunaritgerðin var birt í Morgunblaðinu í dag.
Björn Már tók við viðurkenningarskjali á vel ráðstefnunni um fjármálalæsi.

