Áhugi á auknu samstarfi háskólanna
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins fjallaði um hugsanlegt samstarf HR og HÍ í fréttum sínum í kvöld.
Hér að neðan má sjá fréttina eins og hún birtist á vef Ríkisútvarpsins:
Spara mætti 1200 milljónir árlega
Meira en milljarður gæti sparast árlega með samruna Háskóla Íslands og háskólans í Reykjavík. Slík sameining hefði þó í för með sér víðtækar uppsagnir starfsfólks og kennara og er ekki augljósasta leiðin til sparnaðar að mati rektors HR.
Undanfarið hafa rektorar þessara tveggja skóla átt óformlegar viðræður um einhverskonar samvinnu skólanna enda skarast starfsemi þeirra talsvert. Í báðum þessum skólum má til að mynda finna kennslu í lögfræði, viðskiptafræði og verkfræði. Svafa Grönfeldt, rektor í HR, segir engar viðræður í gangi um að þessar deildir skólanna verði sameinaðar.
Hefur ekki trú á að spara megi svona mikið
Svafa segir alveg klárt að mikill niðurskurður sé framundan. Hún segir mikinn áhuga á samstarfi skólanna og að með samvinnu megi ná fram sparnaði án þess að til uppsagna komi. Ef menn myndu hins vegar ákveða að sameina skólana með það eitt í huga að spara peninga kæmi slíkt óumflýjanlega niður á kennslunni og námi nemenda. Svafa segir sameiningu ekki besta kost til skammtímasparnaðar í rekstri skólanna.

