Forsíðufréttir
Fjölmenni á fundi um kyrrsetningu eigna
Mikið fjölmenni var á málfundi Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík í gær, en umræðuefni fundarins var: Kyrrsetning eigna vegna gruns um refsiverða háttsemi skattaðila: Réttmætt inngrip skattyfirvalda?
Framsögumenn á fundinum voru Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu, Símon Þór Jónsson, forstöðumaður skattasviðs KPMG og Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR. Að loknum framsöguræðum spruttu líflegar umræður.
Morgunblaðið gerir fundinum ítarleg skil í dag.


