HR skipar sér í fremstu röð í rannsóknum á fjármálalæsi
Fulltrúa skólans boðið að halda framsöguerindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Bandaríkjunum
Alþjóðabankinn og Efnahags og framfarastofnunin hafa boðið Breka Karlssyni, forstöðumanni Stofnunar um fjármálalæsi við HR á málþing um fjármálalæsi og rannsóknir á því í Washington 12.-13. nóvember nk. Á þinginu heldur Breki framsöguerindi og tekur síðan þátt í pallborðsumræðum.
Að sögn Breka er boðið tilkomið vegna rannsóknar hans og Bryndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur, lektors við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR á fjármálalæsi á Ísland, sem unnin var fyrir viðskiptaráðuneytið og Samtök fjárfesta síðastliðinn vetur, en nefnd á vegum OECD valdi þá rannsókn sem eina af 10 rannsóknum sem notaðar skyldu sem viðmið til að mynda fjármálalæsisrannsóknarstaðal sem OECD er að útbúa.
Breki Karlsson segir þetta boð vera mikla viðurkenningu fyrir Háskólann í Reykjavík. „Það er óhætt að segja að Háskólinn í Reykjavík sé á hraðri leið með að skipa sér í fremstu röð í fjármálalæsi, en aðrir háskólar sem eiga fulltrúa á þessari ráðstefnu eru t.a.m. MIT og Harvard, háskólar sem eiga eftir að móta framtíð fjármálalæsis í heiminum,“ segir Breki.

