Nýsköpun - íslensk vísindi
Ný þáttaröð í Ríkissjónvarpinu um vísindi og fræði á Íslandi
Ríkissjónvarpið hefur í kvöld sýningu nýrrar þáttaraðar um vísindi og fræði á Íslandi, sem ber heitið Nýsköpun – íslensk vísindi. Hver þáttur er tæpar 30 mín. að lengd og inniheldur þrjú ólík viðfangsefni. Þannig kynnast áhorfendur á öllum aldri 36 áhugaverðum verkefnum úr flestum geirum vísinda og tækni en í þeim efnum er mikil gróska. Hver þáttarhluti byggir á líflegu myndefni og ferskum efnistökum, orðum vísindamannanna sjálfra og þulartexta. Þættirnir eru unnir fyrir RÚV í samvinnu við fjölmargar vísindastofnanir, háskóla, félög og rannsóknarsjóði.
Umsjónarmaður með þáttunum og kynnir er Ari Trausti Guðmundsson rithöfundur og jarðvísindamaður sem annast hefur fjölda útvarps- og sjónvarpsþátta síðan 1980, en hann hlaut viðurkenningu Rannís fyrir kynningu á vísindum 2008.
Vísindamenn Háskólans í Reykjavík eiga sinn skerf í þessum þáttum en umfjöllun um þeirra fræðistörf og rannsókn verður sem hér segir:
- 1. þáttur: Fingurendurhæfir, Þórður Helgason og Haraldur Sigþórsson, TVD
- 2. þáttur: Siglt yfir Norðurpólinn, Þórður Víkingur Friðgeirsson,TVD
- 4. þáttur: Jörðin suðar, Ólafur Guðmundsson, TVD
- 5. þáttur: Íslenskur Geimjeppi, Hönnun X vorið 2009, Indriði Sævar Ríkharðsson og Leifur Þór Leifsson, TVD/TD
- 10. þáttur: Spæjaraforrit fyrir netið, Videntifier, Björn Þór Jónsson, TD
Fyrsti þáttur er á dagskrá í kvöld kl. 21.25 og eftir það í viku hverri fram að jólum. Sjá nánar á vef Ríkissjónvarpsins, www.ruv.is.
Háskólinn í Reykjavík er á meðal helstu styrktaraðila þáttanna en á meðal annarra sem stutt hafa framleiðsluna má nefna Rannís, Tækniþróunarsjóð, Rannsóknasjóð og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

