Samvinna, ekki sameining
Reykjavík, 2. október 2009
Samvinna en ekki sameining HR og HÍ
Ályktun rektors, háskólaráðs og Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík
Rektor, háskólaráð og Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík fagna umræðum um aukna samvinnu háskólanna. Umtalsverð tækifæri til hagræðingar geta falist í verkaskiptingu skólanna og samstarfi um gæðamál, aðstöðu, innkaup og ýmsan rekstur og þjónustu við nemendur. Hins vegar er sameining tveggja stærstu og jafnframt hagkvæmustu háskólaeininga landsins ekki ákjósanleg ef standa á vörð um fjölbreytni og framþróun háskólamenntunar, nýsköpunar- og vísindastarfs hér á landi til framtíðar.
Verkaskipting og sérstaða háskólanna
Háskólinn í Reykjavík hefur sérstöðu sem háskóli atvinnulífsins. HR er stærsti tækniháskóli landsins og útskrifar árlega um 2/3 af öllu tæknimenntuðu háskólafólki hér á landi. Jafnframt útskrifast nú fleiri viðskiptafræðingar frá HR en öðrum innlendum háskólum.
Akademískur styrkur HR hefur vaxið hratt. Skólinn hefur á að skipa hæsta hlutfalli doktorsmenntaðra kennara á sviði viðskipta- og lögfræði hér á landi. Fræðimenn HR birta einnig hlutfallslega flestar greinar í alþjóðlegum ritrýndum fræðitímaritum á sviði tækni, viðskipta og laga hérlendis auk þess sem að birtingatíðni í lýðheilsufræðum er með því hæsta gerist í HR. Alls eru birtingar fræðimanna HR á ritrýndum vettvangi nú yfir 400 á ári og hafa þær tvöfaldast síðan árið 2005.
Ný aðstaða Háskólans í Reykjavík í næsta nágrenni við Háskóla Íslands skapar tækifæri til að auka flæði fólks og þekkingar á milli háskólanna og stuðlar að fjölbreyttu og lifandi þekkingarsamfélagi í Vatnsmýri. Stærð og akademískur styrkur skólanna tryggja gæði háskólastarfsins og hvor þeirra um sig hefur sína sérstöðu. Háskólarnir eru uppspretta þekkingar og nýsköpunar og skapa þúsundum nemenda og fræðimanna valfrelsi til náms og starfa.
Ísland þarf sterka sjálfstæða háskóla
Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands eru tveir stærstu háskólar landsins. Á þeim hvílir mikil ábyrgð gagnvart nemendum, starfsfólki og samfélaginu í heild. Nemendur og starfsfólk háskólanna eru hvött til að standa saman og styðja hvert annað í þeim krefjandi verkefnum sem háskólarnir og þjóðin öll stendur frammi fyrir. Ísland þarf sterka sjálfstæða háskóla og víðsýnt og kraftmikið háskólafólk fyrir það uppbyggingarstarf sem framundan er á komandi árum svo Íslendingar skipi sér áfram á bekk samkeppnishæfustu þjóða heims og njóti lífsgæða eins og best þekkjast.
Þessi ályktun var send til allra helstu fjöl- og netmiðla landsins sem gerðu henni skil með eftirfarandi hætti:

