Forsíðufréttir

Þjóðin treystir lögreglunni, Ríkisútvarpinu, HR og HÍ

6.10.2009

Íslenska þjóðin treystir fjórum stofnunum í samfélaginu umfram öðrum; lögreglunni, Ríkisútvarpinu, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Markaðs- og miðlarannsóknir (MMR) gerði um miðjan september.

Lögreglan nýtur mest trausts, eða 80,9%, 69,7% bera mikið traust til HÍ, rúm 64% treysta Ríkisútvarpinu vel og 54% bera mikið traust til HR.

Aðrar stofnanir sem spurt var um í könnuninni njóta lítils trausts almennings. Má þar nefna að rétt rúmur fimmtungur (21,9%) treystir ríkisstjórninni, tæpur fimmtungur (18,6%) treystir Evrópusambandinu og svipaður fjöldi (18,0%) treystir Alþingi. Íslenska bankakerfið nýtur langminnst trausts þeirra fyrirtækja og stofnana sem spurt var um, en tæp 3% þjóðarinnar bera mikið traust til þess.

Hér má nálgast ítarlegri niðurstöður könnunarinnar.

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica