Þáttaröð byggð á Hruninu
Ríkissjónvarpið sýnir í kvöld fyrsta þáttinn af fjórum um fall bankanna og hrun íslenska fjármálakerfisins í kjölfarið. Þáttaröðin heitir Hrunið og er byggð á samnefndri bók Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings og lektors við lagadeild HR, sem kom út sl. vor. Umsjónarmaður þáttanna er Þóra Arnórsdóttir.
Í þáttunum verður reynt að ráða í hvað gerðist á þessum dögum og vikum, fjallað verður um næturfundi, þjóðnýtingu, mótmæli, táragas, búsáhöld, skemmdarverk, ríkisstjórnarskipti, gengisfall, myntkörfulán, AGS, Svörtuloft, Gordon Brown, Icesave og Helvítis fokking fokk, eins og segir orðrétt í kynningu RÚV á þáttunum.
Þátturinn er á dagskrá kl. 21:05 í kvöld.

