Forsíðufréttir
Alþjóðadagur HR
Alþjóðadagur HR var haldinn í byrjun október. Þar gafst nemendum skólans tækifæri til að kynnast skiptinámi við samstarfsskóla HR út um allan heim. Erlendir skiptinemar við HR kynntu skóla sína og buðu upp á mat frá heimahögum sínum og íslenskir nemendur, sem farið hafa út sem skiptinemar, miðluðu af reynslu sinni.
Fjölmargir nýttu sér þennan möguleika, fræddust og gæddu sér á góðum mat. Myndirnar hér að neðan eru frá Alþjóðadegi HR.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér skiptinám við erlenda háskóla geta haft samband við alþjóðaskrifstofu HR.


