Forsíðufréttir

Hlýtur evrópsk verðlaun fyrst allra kvenna

12.10.2009

Evrópska frjálsíþróttasambandið hefur ákveðið að Þórdís Lilja Gísladóttir, lektor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, verði fyrsta konan til að hljóta nýja viðurkenningu sambandsins sem nefnist The European Athletics Women's Leadership Award. Þessi viðurkenning er veitt Þórdísi fyrir einstakt framlag sitt til frjálsíþrótta. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á starfi kvenna í frjálsum íþróttum í álfunni.

Þórdís heldur utan og tekur við viðurkenningunni í Búdapest í Ungverjalandi um næstu helgi. Þar flytur hún einnig ræðu um hvernig auka megi hlut kvenna í íþróttum.

Þórdís á að baka glæstan íþróttaferil. Hún var í íslenska landsliðinu í aldarfjórðung og fyrirliði þess í 15 ár. Hún keppti á tvennum Ólympíuleikum, sex heimsmeistaramótum, einu Evrópumeistaramóti utanhúss og tvisvar innanhúss.

Morgunblaðið greinir frá þessari miklu viðurkenningu á baksíðu sinni í dag og ræðir við Þórdísi.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica